Við hjá Excar.is höfum helgað okkur því að bjóða upp á góða golfbíla á góðu verði, og höfum við margra ára reynslu af sölu golfbíla á Íslandi.
Fyrirtækið
Framleiðandinn
Excar var stofnað árið 2006 og er staðsett í Kína. Fyrirtækið er eitt af stærstu framleiðendum rafknúinna ferðabíla og golfbíla í heiminum og hefur selt yfir 80.000 bíla um allan heim. Excar framleiðir yfir 15.000 bíla á ári og er þekkt fyrir hágæða LiFePO4 lithium rafhlöður sem veita allt að 88 km drægni á einni hleðslu. Við þekkjum og treystum Excar bílunum.