Já yfirleitt er það hægt. Hafðu endilega samband á excar@excar.is eða í síma 660-1303 og við finnum tíma sem hentar.
Það má gera ráð fyrir að það taki um sex klukkustundir að fullhlaða 135 Ah rafhlöðuna.
Já, það er tveggja ára ábyrgð á bílunum en fjögur ár á Lithium rafhlöðum.
Almennt ef bíll er ekki til á lager og um sérpöntun er að ræða getur tekið 3–4 mánuði að fá afhent. Forpantanir 2026 eru afhentar í lok apríl 2026. Ennþá eru óseldir bílar í þeirri sendingu.
Hægt er að fá mismunandi lokanir á bílana. Harðar lokanir frá Curtis passa á Excar Classic, einnig eru fleiri aðilar að selja ýmsar lausnir sem passa. Við bjóðum upp á léttar lokanir á 2 sæta golfbílana. Suma vinnubíla má fá með hörðu húsi og miðstöð.
Það er misjafnt eftir bílum og kemur fram í nánari lýsingu hvers bíls. Tveggja sæta bílarnir með 135 Ah rafhlöðu — við áætlum að komist um þrjá 18 holu hringi.
Við sýnum bíla við Bugðufljót 17B í Mosfellsbæ. Við erum ekki með eiginlegan opnunartíma og fara samskipti fram í gegnum tölvupóst eða síma.
Mjög auðvelt er að fá varahluti. Oft eigum við eitthvað til á lager en hægt er að panta með flugi varahluti þegar mikið liggur á.
Við sjáum um þjónustu við bílana ef eitthvað kemur fyrir. Almennt er viðhald á bílunum mjög lítið.
Já, við getum útvegað greiðsludreifingu í gegnum Pei. Hér á síðunni er hægt á sjálfvirkan hátt að ganga frá öllu.
Nei, við pöntun er nóg að greiða staðfestingargjald kr. 50.000 og restin er greidd við afhendingu bíls.
Excar bílarnir hafa verið fluttir inn til Íslands frá 2008 og er því næstum 20 ára reynsla komin á bílana hér á landi. Þeir hafa reynst afar vel.
Best er að geyma bílana í frostfríu húsnæði og slá út rafgeymum. Við mælum með því að kíkja á stöðu geyma með því að kveikja á bílnum á 2–3 mánaða fresti til að fylgjast með og hlaða upp ef þarf. En almennt eftir að bíll er sleginn út missir hann ekki hleðslu yfir veturinn.
Í öllum bílum eru LiFePO4 Lithium rafhlöður. Þess vegna eru golfbílarnir frá Excar yfir 100 kg léttari en bílar með hefðbundna sýrugeyma, fara betur með vellinum og þurfa mun minna viðhald. Í öllum okkar bílum eru rafhlöður með hitara sem þýðir að hægt er að hlaða þær í lágum hita eins og getur verið á Íslandi.
Allir Excar bílar eru með innbyggðu hleðslutæki og því óþarfi að burðast með þungt hleðslutæki — eingöngu snúra og stinga í venjulega innstungu.

Fannt þú ekki svar við spurningunni þinni?

Hafðu beint samband við okkur og við hjálpum þér.

📞 Hringja: 660-1303 Senda skilaboð