Góðar fréttir fyrir þá sem bíða eftir sínum Excar golfbíl — bílarnir eru klárir í skip og væntanlegir til landsins í lok apríl.
Afhendingardagurinn nálgast og við hlökkum til að afhenda nýju bílana til þeirra sem þegar hafa pantað. Ef þú hefur ekki enn pantað en hefur áhuga á 2 sæta Excar golfbíl fyrir þetta sumar — þá er enn hægt að koma að forpöntun.
Um Excar golfbílana
- 100% rafmagn — hljóðlátir og umhverfisvænir
- 135Ah Lithium-rafhlöður með allt að 80+ km drægni
- 2 ára framleiðendaábyrgð og 4 ára ábyrgð á rafhlöðu
- Excar Lokun í boði sem viðbót — verndar gegn rigningu og kulda
Hafðu samband í síma 660-1303 eða í gegnum sambandseyðublaðið til að fá frekari upplýsingar eða setja inn forpöntun. Við svörum öllum fyrirspurnum sem fyrst.
